Það var boðið upp á alvöru spennutrylli á Meistaravöllum þegar KV tók á móti Hetti í 1. deild karla.
Leikurinn var hnífjafn og sveiflukenndur allt frá fyrstu mínútu, en þegar upp var staðið fögnuðu Vesturbæingar gríðarlega mikilvægum sigri, 95–94, eftir háspennuatriði í framlengingu.
Karfan spjallaði við Orra Hilmarsson eftir leik en hann skoraði sigurkörfu leiksins þegar rúmar 3 sekúndur voru eftir af framlengingunni. Orri er að upplagi úr KR, en skipti yfir til KV nú rétt fyrir lok leikmannagluggans.





