HomeFréttirÖrn til liðs við Hamar

Örn til liðs við Hamar

Hafnfirðingurinn Örn Sigurðarson hefur samið við Hamar í 1. deild karla og mun leika með liðinu á næstu leiktíð. Örn er 202 cm. hár miðherji sem spilaði upp yngri flokkana með Haukum með viðkomu í Vesturbænum hjá KR.
Örn er vísast vel þegin viðbót í Hveragerði þar sem Svavar Páll Pálsson er hættur og verður sjónvarsviptir af þessum leikreynda harðjaxli. Örn gerði 6,4 stig og tók 3,1 frákast að meðaltali í leik með Haukum í Iceland Express deild karla á síðasta tímabili.
 
Mynd/ Anton Tómasson: Örn t.v. ásamt Lárusi Inga Friðfinnssyni formanni KKD Hamars.
 
AT
  
Fréttir
- Auglýsing -