spot_img
HomeFréttirOrlando og Lakers leika til úrslita um titilinn

Orlando og Lakers leika til úrslita um titilinn

09:40
{mosimage}

(Howard var allt í öllu í liði Orlando í nótt)

Orlando Magic sendi í nótt LeBron James og félaga í Cleveland Cavaliers í sumarfrí. Liðin mættust í sínum sjötta leik þar sem Orlando hafði betur 103-90 á heimavelli sínum í Amway Arena. Það verða því LA Lakers og Orlando Magic sem leika um NBA meistaratitilinn þetta árið.

Dwight Howard átti leikinn skudlausan með 40 stig og 14 fráköst. Það verður því ekkert af Kobe vs. LeBron einvíginu sem eflaust svo marga hafði látið sig dreyma um. Þess í stað eru Orlando Magic komnir í úrslit og er vert að geta þess að leiktíðina áður en Orlando fékk Dwight Howard í nýliðavalinu vann félagið aðeins 21 leik í deildinni.

LeBron James var að vanda stigahæstur hjá Cavaliers með 25 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar.

Úrslitaeinvígið hjá Lakers og Orlando hefst svo þann 4. júní n.k. þar sem tveir fyrstu leikirnir fara fram í Staples Center en leikir 3-5 fara fram í Amway Arena í Orlando.

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -