Hér fyrir neðan eru nokkur af þeim atriðum sem Körfunni hafa borist til eyrna á síðustu dögum er varða leikmenn, þjálfara og félög á Íslandi. Tekið skal fram að hér er um að ræða óstaðfestar fregnir og því ber að taka þeim sem slíkum.
- Samkvæmt orðinu á götunni er Stjarnan komin langt í samningsviðræðum við Emil Barja um að hann taki við sem þjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu.
- Fari svo að það gangi eftir í Garðabænum er talið líklegt að félagið nái að tryggja sér áframhaldandi starfskrafta Hilmars Smára Henningssonar og Ægis Þórs Steinarssonar.
- Pétur Már Sigurðarson er talinn líklegur til að taka við kvennaliði Grindavíkur af Þorleifi Ólafssyni sem sagði starfi sínu lausu í lok tímabils.
- Jóhann Þór Ólafsson verður samkvæmt orðrómi áfram með Íslandsmeistara Grindavíkur í titilvörn þeirra á næstu leiktíð.
- Nýkrýndir Íslandsmeistararnir eru sagðir komnir vel af stað með að sjá fyrir sér hvernig næsta tímabil verður hjá þeim. Nokkuð öruggt þykir að DeAndre Kane verði með þeim, en þeir eru einnig sagðir vilja bæta í og hefur Kári Jónsson leikmaður Vals verið nefndur sem skotmark.
- Grindvíkingar eru sagðir hafa framlengt samning sinn við lykilleikmann sinn Abby Beeman fyrir komandi leiktíð í Bónus deild kvenna.
- Magnús Dagur Svansson leikmaður Sindra er sagður með tilboð á borðinu frá nokkrum félögum, þar á meðal Þór Þorlákshöfn, Ármann og ÍA.
- Orðið á götunni er að Sindri vilji semja áfram við erlenda atvinnumenn sína Jason Gigliotti og Clayton Ladine fyrir fyrsta tímabil sitt í Bónus deild karla.
- Jonathan Braeger er sagður íhuga að yfirgefa Vestra og ganga til liðs við Hamar eða Laugdæli.
- Ingvi Guðmundsson leikmaður Ármanns er sagður líklegur til að ganga til liðs við uppeldisfélag sitt í Grindavík fyrir komandi leiktíð.
Orðið á götunni er einungis til gamans og ef fólk hefur ábendingar um slúður skal hafa samband á [email protected]




