Samkvæmt orðinu á götunni mu Þór Þorlákshöfn hafa átt í viðræðum við Benedikt Guðmundsson um að taka við liðinu fyrir komandi leiktíð í fyrstu deild karla.
Þór féll úr Bónus deildinni á yfirstandandi leiktíð eftir 15 ára samfellda veru í efstu deild, en þjálfari þeirra Lárus Jónsson er talinn líklegur til að róa á önnur mið nú í sumar.
Benedikt er öllum hnútum kunnugur í Þorlákshöfn, en hann tók við liði Þórs árið 2010 og leiddi það strax upp í úrvalsdeild á sínu fyrsta tímabili eftir sigur í 1. deildinni.
Undir hans stjórn varð liðið fljótt eitt af sterkustu liðum deildarinnar og komst alla leið í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn árið 2012, sem var sögulegur árangur fyrir félagið. Hann setti mark sitt á körfuboltann í Þorlákshöfn með því að byggja upp öflugt lið úr nánast engu og skapa mikla körfuboltamenningu í bæjarfélaginu á þeim fimm árum sem hann starfaði þar.
Orðið á götunni er einungis til gamans og ef fólk hefur ábendingar um slúður skal hafa samband á [email protected]




