HomeBónus deildinBónus deild karlaOrðið á götunni: Hvert fara Tómas Valur, Veigar, Bragi og Styrmir?

Orðið á götunni: Hvert fara Tómas Valur, Veigar, Bragi og Styrmir?

Hér fyrir neðan eru nokkur af þeim atriðum sem Körfunni hafa borist til eyrna á síðustu dögum er varða leikmenn, þjálfara og félög á Íslandi. Tekið skal fram að hér er um að ræða óstaðfestar fregnir og því ber að taka þeim sem slíkum.

  • Miðherji Njarðvíkur Dominykas Milka er sagður á förum frá félaginu, en líklegast er talið hann semji við Ármann eða ÍR.

  • Þá er Valur sagðir á eftir öðrum fyrrum leikmanni Njarðvíkur Dwayne Lautier.

  • Leikmaður íslenska landsliðsins og Zamora á Spáni Styrmir Snær Þrastarson er talinn líklegur til að semja við annað lið á meginlandi Evrópu fyrir komandi leiktíð, en fari svo hann komi heim eru Tindastóll og Álftanes sögð á eftir honum.

  • Samkvæmt orðinu á götunni er allt eins talið líklegt að Gojko Zudsum muni ekki leika með ÍA á komandi leiktíð þrátt fyrir að hafa gert þriggja ára samning við félagið. Gott gengi hans í Síle hefur kveikt áhuga liða á meginlandi Evrópu fyrir því að semja við hann.

  • Bragi Guðmundsson leikmaður Ármanns er sagður hafa neitað samningi við Keflavík eftir viðræður við félagið. Samkvæmt orðinu á götunni er hann talinn líklegur til að fara út, eða semja á nýjan leik við Ármann.

  • Leikmaður Íslandsmeistara Grindavíkur Jordan Semple er sagður undir smásjánni hjá bæði Álftanesi og Val.

  • Talið er næsta öruggt að leikmaður Álftaness David Okeke muni yfirgefa félagið fyrir komandi leiktíð. Líklegir áfangastaðir eru taldir Ármann eða Tindastóll.

  • Bergdís Anna Magnúsdóttir leikmaður Hamars/Þórs er sögð líkleg til að ganga til liðs við Val fyrir komandi leiktíð.

  • Samkvæmt orðinu á götunni mun Stjarnan vera á eftir annarri hvorri Jadakiss Guinn úr Hamar/Þór eða Molly Kaiser úr KR fyrir komandi leiktíð.

  • Sá orðrómur hefur heyrst að Davíð Arnar Ágústsson muni taka við sem þjálfari kvennaliðs Þórs Þorlákshafnar.

  • Veigar Páll Alexandersson er sagður líklegur til að yfirgefa Njarðvík fyrir komandi leiktíð, en bara ef það er til liðs á meginlandi Evrópu. Samkvæmt orðrómi á hann að hafa hafnað bæði Grindavík og Val.

  • Tindastóll eru sagðir hafa átt í viðræðum við fyrrum meistara með Golden State Warriors í NBA deildinni Jordan Bell um að leika með liðinu á komandi leiktíð.

  • Leikmaður Grindavíkur Jeremy Pargo er samkvæmt orðinu á götunni hættur í körfubolta.

  • Tómas Valur Þrastarson leikmaður Washington í bandaríska háskólaboltanum er sagður líklegur til að skipta um skóla fyrir komandi leiktíð.

  • Halldór Garðar Hermannsson fyrrum leikmaður Keflavíkur er sagður hafa átt í viðræðum við bæði uppeldisfélag sitt Þór Þorlákshöfn og Stjörnuna.

Orðið á götunni er einungis til gamans og ef fólk hefur ábendingar um slúður skal hafa samband á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -