Hér fyrir neðan eru nokkur af þeim atriðum sem Körfunni hafa borist til eyrna á síðustu dögum er varða leikmenn, þjálfara og félög á Íslandi. Tekið skal fram að hér er um að ræða óstaðfestar fregnir og því ber að taka þeim sem slíkum.
- Talið er líklegt að Hilmir Hallgrímsson verði áfram hjá Haukum á næsta tímabili í fyrstu deild karla. Þá er einnig samkvæmt orðinu á götunni talið líklegt að bróðir hans Hugi muni hlusta á tilboð frá öðrum liðum.
- Háværastur allra orðróma þennan daginn er sá að Baldur Þór Ragnarson fyrrum þjálfari Íslandsmeistara Stjörnunnar muni setjast niður með Álftanesi, Þór og Grindavík áður en hann ákveður hvaða liði hann tekur við næst.
- Fari svo að Baldur semji við Álftanes er einnig talið líklegt að Álftanes muni fara á eftir fyrirliða hans hjá Stjörnunni og íslenska landsliðinu Ægi Þór Steinarssyni.
- Álftnesingar mikið á milli tanna fólks þessa dagana, en þeir hafa einnig verið orðaðir við aðra tvennu, þjálfarann Finn Frey Stefánsson og fyrirliða hans Kristófer Acox úr Val.
- Þjálfaramál Stjörnunnar í fullkominni upplausn síðustu daga eftir uppsögn Baldurs, en mögulegir arftakar hans í Ásgarði eru sagðir innanbúðamennirnir Ingi Þór Steinþórsson og Hörður Unnsteinsson.
- Leikmaður Keflavíkur Sara Rún Hinriksdóttir hefur síðustu daga verið orðuð við félög á höfuðborgarsvæðinu, oftast Val og Stjörnuna.
- Heyrst hefur að Kristófer Breki Björgvinsson muni yfirgefa Hauka fyrir KR í sumar.
- Þórsarar í Þorlákshöfn eru sagðir nokkuð stórhuga fyrir komandi tímabil, en heyrst hefur þeir vilji semja við Sigvalda Eggertsson úr Fjölni og Viktor Jónas Lúðvíksson úr Stjörnunni.
- Þór eru einnig sagðir vilja semja við Lars Erik Bragason úr KR eftir frábært ár hans í fyrstu deildinni með KV, en hann er þó talinn líklegur til að vera áfram í Vesturbænum.
- Sunnlendingurinn Haukur Davíðsson er sagður skoða sig um eftir að lið hans Þór í Þorlákshöfn féll úr Bónus deildinni, en mögulegir áfangastaðir fyrir leikmanninn efnilega hafa verið nefndir Keflavík, Ármann og Fjölnir.
- ÍR eru sagðir á eftir leikmanni Njarðvíkur Dominykas Milka, en ólíklegt er talið hann verði áfram í IceMar höllinni á komandi tímabili.
- Landsliðsmaðurinn Styrmir Snær Þrastarson er sagður með nokkuð stórt tilboð á borðinu úr Skagafirðinum, en hann hefur leikið erlendis síðustu ár, nú síðast á Spáni á yfirstandandi tímabili.
Orðið á götunni er einungis til gamans og ef fólk hefur ábendingar um slúður skal hafa samband á [email protected]




