Hér fyrir neðan eru nokkur af þeim atriðum sem Körfunni hafa borist til eyrna á síðustu dögum er varða leikmenn, þjálfara og félög á Íslandi. Tekið skal fram að hér er um að ræða óstaðfestar fregnir og því ber að taka þeim sem slíkum.
- Nokkuð hávær orðrómur er í gangi um að mögulega muni Kári Jónsson og Kristófer Acox yfirgefa Val fyrir komandi leiktíð. Líklegir áfangastaðir fari svo það gangi eftir eru taldir Stjarnan eða Grindavík
- Grindvíkingar eru einnig sagðir vonast til að geta á nýjan leik samið við Jeremy Pargo fyrir tímabilið
- Samkvæmt orðrómi mun Dominykas Milka fyrrum miðherji Njarðvíkur mögulega vera á leiðinni til Hauka
- Fyrrum miðherji Álftaness David Okeke er sagður líklegur í Bónus deildina aftur, en bæði Tindastóll og Keflavík hafa verið nefndir sem mögulegir áfangastaðir
- Fyrrum þjálfari Álftaness Kjartan Atli Kjartansson er sagður líklegur til að vera í aðstoðarhlutverki með Baldri Þór hjá liðinu á komandi tímabili
- ÍR, Sindri og Stjarnan eru sögð vilja semja við fyrrum leikmann nokkurra liða í Bónus deildinni Dimitrios Klonaras
- Þá er Mango Tsotne sagður nálægt því að semja aftur við ÍR
- Samkvæmt orðrómi mun ÍR einnig vera á eftir Dani Koljanin ásamt Ármanni
- Cedrick Bowen er sagður með nokkur tilboð á borðinu, meðal annars frá Val, ÍR og Njarðvík
- ÍA eru sagðir vilja semja við leikmann ÍR Rafn Kristján Kristjánsson
Orðið á götunni er einungis til gamans og ef fólk hefur ábendingar um slúður skal hafa samband á [email protected]




