spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaOrðið á götunni: Gengur Ægir Þór til liðs við Íslandsmeistara Vals?

Orðið á götunni: Gengur Ægir Þór til liðs við Íslandsmeistara Vals?

Hér fyrir neðan eru nokkur af þeim atriðum sem Körfunni hafa borist til eyrna á síðustu dögum er varða leikmenn, þjálfara og félög á Íslandi. Tekið skal fram að hér er um að ræða óstaðfestar fregnir og því ber að taka þeim sem slíkum.

  • Orðið á götunni er að Íslandsmeistarar Vals hafi blandað sér í baráttunni um leikmann Acunsa GBC Ægir Þór Steinarsson með rausnarlegu tilboði, en hann hafði áður verið orðaður við bæði Stjörnuna og Njarðvík, færi svo að hann yrði á Íslandi á næsta tímabili

  • Leikmaður Breiðabliks Frank Aaron Booker er sagður næsta öruggur til Grindavíkur

  • Þá hefur heyrst að nýliðar Hattar séu við það að semja við leikmann Þórs Luciano Massarelli

  • Einnig hefur heyrst að Höttur hafi átt í viðræðum við fyrrum leikmann Hauka Deion Bute

  • Heyrst hefur að Sanja Orozovic leikmaður Fjölnis sé að íhuga að ganga í raðir Breiðabliks

  • Blikar eru samkvæmt orðrómi nálægt því að ráða Yngva Gunnlaugsson í stað Ívars Ásgrímssonar í Subway deild kvenna

  • Þá mun Breiðablik vera í viðræðum við fyrrum leikmann Vestra í Subway deild karla Julio de Assis

  • Hinn efnilegi Almar Orri Atlason er sagður líklegur til þess að yfirgefa KR í sumar og hefur meðal annarra lið Keflavíkur verið nefnt sem mögulegur áfangastaður

  • Annar efnilegur, leikmaður Íslandsmeistara Vals Ástþór Atli Svalason er sagður líklegur til þess að taka tímabil í fyrstu deildinni og að líklega verði Fjölnir fyrir valinu

  • Leikmaður Álftanes Ragnar Jósef Ragnarsson er sagður leita sér að liði og hefur Fjölnir verið nefndur sem áfangastaður

  • Þá er bakvörður ÍR Róbert Sigurðsson sagður líklegur til þess að halda í heimahagana til Fjölnis

  • Annar leikmaður ÍR er orðaður frá félaginu, en talið er allt eins líklegt að Benoný Svanur Sigurðsson gangi til liðs við Hamar í fyrstu deildinni

  • Erlendir leikmenn Grindavíkur 2021-22 EC Matthews og Ivan Aurrecoechea eru báðir orðaðir við annað tímabil með félaginu

  • Þá hefur heyrst að Ingvi Þór Guðmundsson sé orðinn leikfær á ný eftir að hafa verið frá í nokkurn tíma og að hann muni annaðhvort ganga til liðs við Þrótt Vogum eða uppeldisfélag sitt í Grindavík

  • Samkvæmt orðrómi mun Austin Magnús Bracey vera nálægt því að ganga til liðs við nýliða Ármanns í fyrstu deild karla

  • Gísli Þórarinn Hallsson leikmaður Sindra í fyrstu deild karla er sagður vera á leiðinni til nýliða Hattar í Subway deildinni

  • Þá er liðsfélagi hans hjá Sindra Tómas Orri Hjálmarsson sagður á leið vestur um haf í bandaríska háskólaboltann

  • Enn annar leikmaður Sindra, hinn efnilegi Birgir Leó Halldórsson er samkvæmt orðrómi á leiðinni til Spánar í akademíu Valencia

  • Leikmaður Fjölnis Matilda Sóldís Svan Hjördísardóttir er sögð líkleg til þess að fylgja systur sinni Emmu Sóldísi til Hauka

Orðið á götunni er einungis til gamans og ef fólk hefur ábendingar um slúður skal hafa samband á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -