HomeNeðri deildir1. deild karlaOrðið á götunni: Eru Dúi og Hilmir á förum frá Álftanesi?

Orðið á götunni: Eru Dúi og Hilmir á förum frá Álftanesi?

Hér fyrir neðan eru nokkur af þeim atriðum sem Körfunni hafa borist til eyrna á síðustu dögum er varða leikmenn, þjálfara og félög á Íslandi. Tekið skal fram að hér er um að ræða óstaðfestar fregnir og því ber að taka þeim sem slíkum.

  • Talið er næsta öruggt að Hilmir Arnarson yfirgefi Álftanes fyrir komandi leiktíð, en hann hefur mikið verið orðaður við ÍA síðustu daga.

  • Þá hefur Blikinn Alexander Jan Hrafnsson einnig verið orðaður við ÍA.

  • Annar Álftnesingur Dúi Þór Jónsson er sagður undir smásjánni hjá ÍR.

  • Útlit er fyrir að Dominykas Milka sé að yfirgefa herbúðir Njarðvíkur, en kappinn er sterklega orðaður við Keflavík og Reykjavíkurfélögin Ármann og ÍR. Það gæti því stefnt í flutninga á mölina hjá miðherjanum sterka.

  • Jacob Falko leikmaður ÍR er sagður eftirsóttur, en bæði Stjarnan og KR eru sögð hafa sýnt honum áhuga.

  • KR eru einnig sagðir hafa kannað þess kost að semja við fyrrum leikmann Keflavíkur Craig Moller.

  • Hinn efnilegi Björn Skúli Birnisson er sagður íhuga að yfirgefa Stjörnuna fyrir komandi leiktíð og er samkvæmt orðinu á götunni með gott tilboð á borðinu frá nýliðum Sindra í Bónus deild karla.

  • Laugdælir eru sagðir vilja semja við Steven Williams Lyles, sem síðast lék fyrir Selfoss í fyrstu deildinni.

  • Þá sitja Valsmenn ekki auðum höndum heldur eru þeir sagðir sýna Dwayne Lautier, fyrrum leikmanni Njarðvíkur, mikinn áhuga.

  • Landsliðsmaðurinn Kristinn Pálsson er sagður á heimleið eftir tímabil á Ítalíu og hafa Álftanes, Njarðvík og Keflavík öll verið nefnd sem mögulegir áfangastaðir.

  • Stjarnan er sögð hafa átt í viðræðum við atvinnumanninn Steven Verplancken, en félagið er sagt ætla sér að hefja næsta tímabil með aðeins tvo erlenda atvinnumenn.

  • Sæþór Elmar Kristjánsson er samkvæmt orðrómi að líta í kringum sig og eru Þór Þorlákshöfn, Sindri og Þór Akureyri öll talin líkleg til þess að falast eftir starfskröfum hans.

  • Leikmaður Grindavíkur á síðustu leiktíð Ellen Nyström er samkvæmt orðrómi nálægt því að framlengja samningi sínum við félagið.

Orðið á götunni er einungis til gamans og ef fólk hefur ábendingar um slúður skal hafa samband á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -