Hér fyrir neðan eru eitt af þeim atriðum sem Körfunni hafa borist til eyrna á síðustu dögum er varða leikmenn, þjálfara og félög á Íslandi. Tekið skal fram að hér er um að ræða óstaðfestar fregnir og því ber að taka þeim sem slíkum.
- Sú saga gengur nú manna á milli að Borche Ilievski og ÍR-ingar séu á eftir fyrrum miðherja Stjörnunnar Kevin Kone og muni mögulega semja við hann fyrir komandi leiktíð í Bónus deild karla.
- Kevin lék fyrir Stjörnuna tímabilið 2023-24 og skilaði þá 11 stigum og 11 fráköstum að meðaltali í 18 leikjum fyrir félagið.
- Síðan hann lék fyrir Stjörnuna hefur hann verið með tveimur liðum í annarri deild Frakklands, nú síðast liði Caen.
Orðið á götunni er einungis til gamans og ef fólk hefur ábendingar um slúður skal hafa samband á [email protected]




