HomeBónus deildinBónus deild karlaOrðið á götunni: Eru Álftnesingar að landa framlagshæsta leikmanni síðasta tímabils?

Orðið á götunni: Eru Álftnesingar að landa framlagshæsta leikmanni síðasta tímabils?

Hér fyrir neðan eru eitt af þeim atriðum sem Körfunni hafa borist til eyrna á síðustu dögum er varða leikmenn, þjálfara og félög á Íslandi. Tekið skal fram að hér er um að ræða óstaðfestar fregnir og því ber að taka þeim sem slíkum.

  • Lykilleikmaður Íslandsmeistara Grindavíkur Jordan Semple er sagður íhuga brottför frá liðinu. Samkvæmt orðrómi um Jordan hafa átt í viðræðum við Álftanes um að ganga til liðs við þá fyrir komandi leiktíð.

  • Umdeilanlega var Jordan Semple mikilvægasti leikmaður Grindavíkur á Íslandsmeistaratímabili þeirra. Leiddi deildina í framlagi með tæp 29 framlagsstig að meðaltali í leik, en hann var með 17 stig og 11 fráköst að meðaltali í leik á leiktíðinni.

Orðið á götunni er einungis til gamans og ef fólk hefur ábendingar um slúður skal hafa samband á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -