Hér fyrir neðan eru nokkur af þeim atriðum sem Körfunni hafa borist til eyrna á síðustu dögum er varða leikmenn, þjálfara og félög á Íslandi. Tekið skal fram að hér er um að ræða óstaðfestar fregnir og því ber að taka þeim sem slíkum.
- Talið er líklegt að ÍA semji á nýjan leik við Gojko Zudzum fyrir komandi átök í fyrstu deild karla.
- Þá hefur einnig heyrst að ungstirnið Styrmir Jónasson sé með risatilboð á borðinu frá ÍA og sé allt eins líklegur til þess að taka slaginn með þeim í fyrstu deildinni.
- Einnig hefur heyrst að ÍA sé á eftir miðherja Álftaness David Okeke.
- Ekki er talið líklegt að Dominykas Milka verði áfram í herbúðum Njarðvíkur, talið er líklegt hann semji við Ármann, Hauka eða Val fyrir næsta tímabil.
- Samkvæmt orðinu á götunni er allt eins talið líklegt að þjálfari Vals Finnur Freyr Stefánsson yfirgefi Val í sumar, líklegir áfangastaðir eru taldir Álftanes eða Tindastóll fari svo hann fari úr Hlíðunum.
- Þá er samkvæmt orðinu á götunni einnig talið ólíklegt að Veigar Páll Alexandersson verði áfram í Njarðvík, hann er þó talinn líklegur til að yfirgefa Ísland fari svo hann verði ekki áfram í Njarðvík. Mikill áhugi er þó á honum í Bónus deildinni hjá félögum, mest heyrst frá Keflavík og af Álftanesi.
- Tvö nöfn hafa verið nefnd sem mögulegir arftakar Daða Bergs Grétarssonar hjá Hamri, Lárus Jónsson og Hallgrímur Brynjólfsson.
- Þá hefur heyrst að Lárus Jónsson og Benedikt Guðmundsson séu báðir undir smásjánni hjá Álftanesi og Grindavík fyrir næsta tímabil.
- Sunnlendingurinn Chris Caird er einnig sagður líklegur til viðræðna við Álftanes um að taka við þjálfun liðsins.
- Annar sunnlendingur Eyþór Orri Árnason hefur verið orðaður við þjálfarastöðuna hjá Þóri Akureyri.
- Þór eru enn sagðir leita að þjálfara fyrir komandi tímabil, háværar raddir segja enn að Benedikt Guðmundsson taki við, en einhverjir hafa þó nefnt að félagið vilji einnig setjast niður með Ísaki Mána Wíum.
- Talið er líklegt að leikmaður Hamars Lúkas Aron Stefánsson söðli um og gangi til liðs við Þór eða Ármann í sumar.
- Heyrst hefur að ÍR sé á höttunum eftir fyrrum leikmanni Þórs Rafail Lanaras.
- Þá eru ÍR einnig sagðir á eftir Reyni Bjarkan Róbertssyni úr KR, Sölva Ólasyni úr Breiðablik og Garðari Norðfjörð úr Fjölni.
- Njarðvíkingar eru sagðir vilja semja við fyrrum leikmann ársins í Bónus deildinni Kristinn Pálsson, en hann hefur leikið á Ítalíu á þessu tímabili.
- KR-ingingurinn Þorvaldur Árnason er sagður með tilboð frá Njarðvík.
- Samkvæmt orðinu á götunni mun leikmaður Njarðvíkur hin efnilega Sara Logadóttir íhuga að ganga til liðs við Val fyrir næstu leiktíð í Bónus deildinni.
- Þórsarar í Þorlákshöfn eru sagðir tilbúnir að brjóta bankann til þess að semja við leikmann ársins úr fyrstu deildinni á síðustu leiktíð Sigvalda Eggertsson úr Fjölni eða Lars Erik Bragason úr KR.
- Talið er líklegt að Keflavík framlengi samninga sína við Hilmar Pétursson og Ólaf Björn Gunnlaugsson.
Orðið á götunni er einungis til gamans og ef fólk hefur ábendingar um slúður skal hafa samband á [email protected]






