spot_img
HomeFréttirÖllu mótahaldi frestað til 19. október

Öllu mótahaldi frestað til 19. október

Rétt í þessu sendi KKÍ frá sér þau tilmæli að farið verði eftir tilmælum sóttvarnarlæknis og Almannavarna um að gera hlé á öllu íþróttastarfi til og með 19. október.

Hér fyrir neðan er hægt að lesa tilkynninguna í heild, en í henni er tekið fram að sambandið bíði enn tilmæla frá heilbrigðisráðuneytinu er varða útfærslur æfinga.

Tilkynning KKÍ:

Vegna hertra aðgerða yfirvalda til að sporna við útbreiðslu COVID-19 og tilmæla sóttvarnarlæknis og Almannavarna um að gert verði hlé á íþróttastarfi ákvað stjórn og mótanefnd KKÍ á fundi sínum í dag að fresta mótahaldi í öllum aldursflokkum vegna almannahagsmuna til og með 19. október og endurmeta stöðu mála að þeim tíma liðnum. Mælst er til þess af sóttvarnarlækni að íþróttastarf verði stöðvað og með þessari ákvörðun vill KKÍ leggja sitt á vogarskálarnar í varnarbaráttunni gegn faraldrinum. 

Á tímum sem þessum, þegar kallað hefur verið eftir samstöðu þjóðarinnar, telja stjórn, mótanefnd og starfsfólk KKÍ réttast að ganga í takti við tilmæli sóttvarnarlæknis og almannavarna í ljósi þess að ekki hafa komið fram skýr fyrirmæli í dag frá hinu opinbera. 

Beðið er eftir nánari útskýringum heilbrigðisráðuneytis á útfærslum æfinga og mun skrifstofa KKÍ senda frekari upplýsingar þegar þær berast. 

Fréttir
- Auglýsing -