spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaÓlíklegt hún stígi aftur á parketið

Ólíklegt hún stígi aftur á parketið

Landsliðsmiðherjinn Birna Valgerður Benónýsdóttir tjáði fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum frá því að ólíklegt væri að hún næði að stíga aftur á parketið í keppnisleik, en hún hefur verið frá síðan hún sleit krossband í maí 2024.

Samkvæmt Birnu mun hún hafa farið í þrjár aðgerðir á þessu tímabili síðan og eftir þá síðustu var henni tjáð að skaðinn hafi verið alvarlegri heldur en áður var talið og talið ólíklegt hún ætti afturkvæmt. Færslu Birnu má lesa hér fyrir neðan, en samkvæmt henni vill hún þó ekki útiloka neitt þrátt fyrir að þetta sé staðan í dag.

Fréttir
- Auglýsing -