spot_img
HomeFréttirÖldungamót á Akureyri

Öldungamót á Akureyri

06:00
{mosimage}

Öldungamót á Akureyri, að hætti Þórsbræðra Eiríks og Jóhanns Sigurðssona, verður haldið laugardaginn 14. febrúar á nýlögðu parketgólfi íþróttahallarinnar á Akureyri. Löglegir leikmenn eru 30 ára og eldri í karlaflokki og 28 ára og eldri í kvennaflokki, sem ekki hafa leikið í efstu deild á leikárinu.

Þátttökugjald 2.000 kr. á mann og innifalið er pítsuveisla og verðlaunaafhending í mótslok. Síðan er meiningin að fara í vísindaleiðangur á ónefndan stað og enda svo kvöldið á skoðunarferð um bæinn.

 

Skráning og upplýsingar er hjá Guðmundi Helgasyni á netfanginu [email protected]

www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -