Á Körfuknattleikþinginu 2015 sem fram fór í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal um helgina var Ólafur Rafnsson, fyrrverandi formaður KKÍ, sæmdur Heiðurskrossi KKÍ. Ólafur lést um aldur fram árið 2013 aðeins fimmtugur að aldri. Ólafur var forseti FIBA Europe er hann lést ásamt því að vera forseti ÍSÍ.
Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, afhenti Gerði Guðjónsdóttur eftirlifandi eiginkonu, Heiðurskrossinn núna rétt í þessu.
Ólafur er aðeins fimmti Heiðurskrosshafi KKÍ frá upphafi en aðrir sem hafa fengið þessa æðstu heiðursviðurkenningu KKÍ eru Bogi Þorsteinsson, Einar Bollason, Einar Ólafsson og Kolbeinn Pálsson.
Meira um Ólaf:
Ólafur var leikmaður og þjálfari með Haukum í Hafnarfirði. Hann var formaður KKÍ árin 1996 til 2006 áður en hann var kjörinn í embætti forseta ÍSÍ árið 2006. Árið 2010 var hann kjörinn forseti FIBA Europe. Ólafur var giftur Gerði Guðjónsdóttur og áttu þau þrjú börn. Auði Írisi, Sigurð Eðvarð og Sigrúnu Björg.
Frá þessu er greint í tilkynningu frá KKÍ.
Mynd: Gerður Guðjónsdóttir ásamt börnum sínum og Guðbjörgu Norðfjörð, varaformanni KKÍ, og Hannesi S. Jónssyni formanni KKÍ.




