spot_img
HomeFréttirÓlafur Ólafsson - Pepplistinn Minn

Ólafur Ólafsson – Pepplistinn Minn

 

Hvað ætli leikmenn setji á fóninn rétt fyrir leik?

 

Við fengum leikmann Grindavíkur, Ólaf Ólafsson, til þess að ljóstra upp fyrir okkur hvaða lög það væru sem hlustað væri á til þess að koma sér í gírinn.

 

Grindavík heimsækir KR kl 19:15 í 3. umferð Dominos deildarinnar.

 

Ólafur:

 

 

Hjálmar – Leiðin okkar allra 

Miklu uppáhaldi hjá mér og Hjálmar almennt, þykir gott að byrja á rólegum tónum.

 

Fjallabræður – Ísland er land þitt

Fjallabræður komu á 75 ára afmæli Grindarvíkurbæjar spiluðu þetta góða lag, svo elska ég landið mitt bara svo mikið!

 

Helgi Björs – Blautar Varir 

Ég er mikill Helga maður og finnst mjög gaman að fara á tónleika með honum! Svo er þessi útgáfa af laginu geðveik!

 

Emmsjé Gauti – Silfurskotta

Geðveikt lag! Gauti að taka þetta á annað level.

 

Emmsjé Gauti – Reykjavík 

Annað frábært lag af plötunni frá Gauta svo skemmir ekkert fyrir að hann Björn Valur frændi samdi lagið.

 

Emmsjé Gauti – Ómar Ragnarsson 

Gauti að drepa, hrikalega gott lag.

 

Kungs – This girl 

Heyrði þetta fyrst í sumar þegar Finnur Freyr og Ægir Þór voru að raula þetta og heillaðist rosalega af því, geðveikt lag.

 

Sxsxsx – Up down

Enn og aftur er frændi að gera gott mót, hæfileikarnir eru svo margir í þessari fjölskyldu að það er fáránlegt! Er í 1-2 sæti á Rás 2.

 

AC/DC – Thunderstruck 

Smá old school rock, er hrifin af þessari grúbbu.

Fréttir
- Auglýsing -