HomeFréttirÓlafur Jónas kveður Klakann á ný

Ólafur Jónas kveður Klakann á ný

 
Bakvörðurinn Ólafur Jónas Sigurðsson verður ekki með Stjörnunni í Iceland Express deildinni á næstu leiktíð þar sem hann hyggur á flutning til Danmerkur á nýjan leik. Ólafur hefur ekki gert upp hug sinn hvar hann muni leika í Danaveldi.
,,Ég er ekki búinn að ákveða hvað ég ætla að gera næsta vetur í sambandi við boltann en það vonandi skýrist fljótlega. Ég er eitthvað að skoða það að spila í efstu deild aftur en það er ekkert ákveðið. Ég er ekkert að stressa mig á þessu strax,“ sagði Ólafur sem kom frá Danmörku á síðasta tímabili til liðs við Stjörnuna í febrúarmánuði.
 
,,Planið er að fara í master í kennslufræðum og svo vonandi spila einhvern bolta með hvort sem það verður með liði í efstu deild eða 1. deild skiptir ekki máli,“ sagði Ólafur sem leysti Justin Shouse stöku sinnum af hólmi í vetur þann stutta tíma sem hann staldraði við í Garðabæ.
 
Ljósmynd/ Ólafur í leik gegn KR í Ásgarði á síðustu leiktíð.
 
Fréttir
- Auglýsing -