Ólafur Helgi Jónsson er nýr liðsmaður Þórsara fyrir næstu leiktíð. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Þórs í dag. Á síðunni segir einnig:
Frábært að fá þennan eðaldreng í hópinn og bjóðum við hann velkominn. Ólafur Helgi kemur frá Njarðvík og var hann með 7 stig og 7,8 framlagspunkta að meðaltali í vetur.
Leikmannahópur Þórsara er virkilega flottur og er spennandi vetur framundan. Nú hafa allir leikmenn liðsins skrifað undir samning eða eru á samningi.



