Á laugardaginn lauk fyrri hluta þess að fá úr því skorið hvaða 12 lið munu taka þátt á Ólympíuleikunum í Ríó næsta sumar. Nú hafa sjö lið karla og fimm lið kvenna tryggt sér sæti á leikunum og framundan eru mót sem skera úr hvaða lið fylgja þeim næsta sumar.
Frá 11. júní til og með 3. október í ár léku alls 68 karlalið og 50 kvennalið frá öllum fimm FIBA samböndunum, Afríku, Ameríku, Asíu, Evrópu og Eyjaálfu, í sínum álfukeppnum og kepptu um laus sæti á leikunum í Brasilíu.
KARLAR – Lönd sem hafa tryggt sér sæti:
Afríka: Nígería
Ameríka: Venesúela og Argentína
Asía: Kína
Evrópa: Spánn og Litháen
Eyjaálfa: Ástralía
Auk þessara liða munu Bandaríkin taka þátt sem heimsmeistarar 2014 og Brasilía sem gestgjafar.

KONUR – Lönd sem hafa tryggt sér sæti:
Afríka: Senegal
Ameríka: Kanada
Asía: Japan
Evrópa: Serbía
Eyjaálfa: Ástralía
Úrtökumót FIBA fyrir ÓL0216
Fimmtán karlalið og tólf kvennalið sem náðu ekki að tryggja sig á Ólympíuleikana fá annað tækifæri í gegnunum úrtökumót FIBA (FIBA Olympic Qualifying Tournaments (OQTs). Þau eru frá viðkomandi álfum:
KARLAR
Afríka: Angóla, Túnis og Senegal
Ameríka: Kanada, Mexikó og Púertó Ríkó
Asía: Filipseyjar, Íran og Japan
Evrópa: Frakkland, Serbía, Grikkland, Ítalía, Tékkland
Eyjaálfa: Nýja Sjáland
Auk þessara 15 liða mun FIBA þrjú lönd sem gestgjafalönd fá að taka þátt og verður liðunum skipt upp í 3 mót með 6 liðum þar sem sigurvegarinn fer beint á ÓL2016.
KONUR
Afríka: Kamerún, Nígería
Ameríka: Kúba, Argentína, Venesúela
Asía: Kína, Suður-Kórea
Evrópa: Frakkland, Spánn, Hvíta-Rússland og Tyrkland
Eyjaálfa: Nýja Sjáland
Þessi lið munu keppa á einu 12-liða móti þar sem topp fimm komast á ÓL2016 en eitt þessara landa mun halda mótið.



