HomeFréttirOklahoma skellti Miami

Oklahoma skellti Miami

Í gær og í nótt fóru fram átta leikir í NBA deildinni. Kevin Durant og félagar í Oklahoma tóku þá á móti Miami Heat og skelltu gestum sínum 103-87. Durant gerði sér dælt við þrennuna með 28 stig, 9 fráköst og 8 stoðsendingar.
Serge Ibaka lét ekki sitt heldur eftir liggja með 19 stig og 10 fráköst. Fyrstu sex leikmenn Oklahoma skoruðu 99 af 103 stigum liðsins í leiknum. Hjá Miami var Dwyane Wade atkvæðamestur með 22 stig og LeBron James bætti við 17 stigum og 7 stoðsendingum.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
Cleveland 83 – 108 Phoenix
Minnesota 117 – 100 Denver
Boston 88 – 76 Washington
Atlanta 139 – 133 Utah
San Antonio 93 – 76 Philadelphia
Portland 90 – 87 Golden State
LA Lakers 96 – 102 Memphis
 
Staðan í deildinni
EASTERN CONFERENCE
Eastern W L PCT GB CONF DIV HOME ROAD L 10 STREAK
Chicago1x 40 10 0.800 0.0 29-7 9-1 20-4 20-6 8-2 W 4
Miami2 35 12 0.745 3.5 27-6 8-3 20-2 15-10 7-3 L 1
Orlando3 31 18 0.633 8.5 24-12 7-5 18-8 13-10 6-4 W 2
Philadelphia4 27 22 0.551 12.5 20-11 4-3 17-10 10-12 5-5 L 1
Atlanta5 30 20 0.600 10.0 23-11 8-3 16-7 14-13 7-3 W 4
Indiana6 28 19 0.596
Fréttir
- Auglýsing -