Sex leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Oklahoma City Thunder lögðu Golden State Warriors á úitvelli í miklum stigaleik sem lauk með 116-119 sigri Oklahoma.
Golden State 116-119 Oklahoma
Monta Ellis átti svakalegan leik í liði Golden State með 48 stig og 7 fráköst en Kevin Durant og Russell Westbrook fóru fyrir Oklahoma, Durant með 33 stig, 10 fráköst og 7 stoðsendingar og Westbrook bætti við 31 stigi og 7 stoðsendingum.
Önnur úrslit næturinnar
Indiana 104-99 Utah
Boston 94-84 Charlotte
Miami 107-91 Cleveland
Milwaukee 105-107 Phoenix
Minnesota 86-84 Sacramento
Þá er leiktíðinni lokið hjá bakverðinum Chaunsey Billups en hann hefur slitið hásin í vinstri fæti en þetta gerðist í sigri Clippers gegn Orlando fyrr í vikunni. Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær leikmaðurinn fer í aðgerð en ljóst þykir að tímabilið sé búið og skarð fyrir skildi í herbúðum Clippers.



