spot_img
HomeFréttirOfsafengin viðbrögð við fyrstu umferðum Dominos deildanna - Keflavík verður með heimavöll...

Ofsafengin viðbrögð við fyrstu umferðum Dominos deildanna – Keflavík verður með heimavöll í úrslitakeppninni

Dominos deildir karla og kvenna rúlluðu af stað fyrir helgina með nokkrum skemmtilegum leikjum. Í þessari síðustu upptöku er farið yfir þessa fyrstu leiki og þau atriði sem brenna mest á eftir þessar fyrstu umferðir.

Þá eru málefni 1. deilda karla og kvenna einnig rædd. Farið er yfir kynþáttaníðsmálið er átti sér stað á Höfn um helgina og þá staðreynd að nú verði kvennalið ÍR að gefa í og koma sér upp í Dominos deildina.

Umsjón: Davíð Eldur, Ólafur Þór & Bryndís

Podcast Körfunnar er í boði Dominos og minnt er á að hlustendur fá 30% afslátt af sóttum pítsum með kóðanum “karfan.is” panti þeir í gegnum Dominos.is eða með Dominos appinu.

Dagskrá:

01:00 – Létt hjal

04:50 – Dominos deild kvenna

16:00 -Dominos deild karla

50:00 – 1. deildirnar

Fréttir
- Auglýsing -