Tryggvi Snær Hlinason lét vel að sér kveða í spænsku ACB-deildinni í dag þegar hann skilaði níu stigum, fimm fráköstum og tveimur stoðsendingum á 21 mínútu á vellinum.
Frammistaða landsliðsmiðherjans hjálpaði Bilbao að landa níu stiga sigri gegn San Pablo Burgos. Með sigrinum er Bilbao komið með fjögur stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar, með tvo sigra og eitt tap í farteskinu.




