Höttur á Egilsstöðum hefur samið við Odd Benediktsson um að vera aðstoðarþjálfari meistaraflokks á komandi tímabili. Þar mun hann aðstoða Viðar Örn Hafsteinsson sem hefur þjálfað liðið í nokkur ár. Oddur staðfesti þetta í samtali við Karfan.is.
Oddur var aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Stjörnunni á síðasta tímabili en þar áður þjálfaði hann Hamar í Dominos deild kvenna. Einnig hefur hann þjálfað hjá Tindastól og Hamri.
Í samtali við Karfan.is sagði Oddur: „Mér lýst vel á liðið, Egilsstaði og samfélagið í bænum. Liðið er með marga góða og efnilega leikmenn. Viddi hafði samband og setti upp áhugaverðan pakka, aðstoða í meistaraflokknum, vera með 2 yngri flokka og vinna í leikskólanum. Þannig að ég er spenntur fyrir vetrinum og hlakka til að vera fyrir austan í vetur.“
Höttur sem eru nýliðar í Dominos deild karla hefja leik þann 5. október er þeir taka á móti Stjörnunni á Egilsstöðum.




