HomeBónus deildinBónus deild kvennaNýsjálensk landsliðskona til Grindavíkur

Nýsjálensk landsliðskona til Grindavíkur

Grindavík hefur samið við nýsjálensku landsliðskonuna Tegan Graham fyrir komandi tímabil. Hún lék síðast með Perth Lynx í Ástralíu, en var áður valin verðmætasti leikmaðurinn í þýsku 2. Bundesligunni þar sem hún leiddi lið sitt til sigurs.

Tegan er fjölhæfur framherji með góða þriggja stiga skotnýtingu, auk þess sem hún á að baki dýrmæta reynslu úr bandaríska háskólaboltanum með BYU og af alþjóðlegum vettvangi með landsliði sínu.

Fréttir
- Auglýsing -