spot_img
HomeFréttirNýr útikörfuboltavöllur á Hornafirði

Nýr útikörfuboltavöllur á Hornafirði

 
 
Í sumar fengu Hornfirðingar nýjan Sport Court útikörfuboltavöll. Er þetta mikið gleðiefni fyrir körfuboltann á Hornafirði sem hefur vaxað og dafnað undanfarin ár. Síðan völlurinn var tekinn í notkun hefur hann verið mikið notaður og eru krakkar á öllum stundum að leika sér í körfubolta á vellinum. 
Stjórn körfuknattleiksdeildarinnar ásamt körfuboltamönnum á Hornafirði lögðu völlinn en hann er inná lóð grunnskóla Hornafjarðar.
 
Völlurinn var formlega vígður 25. ágúst með leik milli stjórnar kkd. Sindra og bæjarstjórnar sveitarfélagsins.
 
Frétt og mynd af www.kki.is
Fréttir
- Auglýsing -