Tindastóll hefur samið við hinn finnska Daniel Dolenc um að leika með liðinu á yfirstandandi tímabili.
Miklar sögusagnir hafa verið með félagaskiptin síðustu daga, en Daniel mun að öllum líkindum koma í stað Ivan Gavrilovic hjá liðinu samkvæmt heimildum.
Daniel er 32 ára 204 cm reynslumikill finnskur miðherji sem síðast lék fyrir Široki í Króatíu, en ásamt því að hafa leikið þar og í heimalandinu Finnlandi hefur hann verið á mála hjá liðum í Litháen, Rúmeníu, Austurríki og Frakklandi. Þá hefur hann einnig leikið fyrir finnska A landsliðið, 18 leiki.




