HomeBónus deildinBónus deild karlaNýr áfangastaður hjá efnilegum Valsara

Nýr áfangastaður hjá efnilegum Valsara

Íslenski körfuknattleiksmaðurinn Páll Gústaf Einarsson hefur skuldbundið sig til þess að ganga til liðs við Northfield Mount Hermon (NMH) menntaskólann í Bandaríkjunum fyrir komandi vetur. Páll, sem er fæddur árið 2008 og kemur úr röðum Vals, er gríðarlega hávaxinn leikmaður eða um 211 sentímetrar á hæð, og spilar hann sem framherji og miðherji.

Þjálfarateymi NMH lýsir yfir mikilli ánægju með komu hans og bindur miklar vonir við hæfileika hans, fjölhæfni og líkamsburði. Áður en Páll heldur á skólasvæðið vestanhafs í haust mun hann leika með yngri landsliðum Íslands á Norðurlandamótinu.

Fréttir
- Auglýsing -