HomeFréttirNýliðaslagur á Jakanum

Nýliðaslagur á Jakanum

Haukar voru gestir KFÍ í kvöld og má segja að í boði hafi verið háspennuleikur. Frekar fáir áhorfendur sáu sér fært að mæta, en það telst til undantekninga á Ísafirði. Þeir sem það þó gerðu fengu svo sannarlega auranna virði með þessum miðakaupum. Bæði þessi lið komu upp úr fyrstu deild í vor og greinilegt frá byrjun að ekkert yrði gefið eftir. Leikurinn var nokkuð köflóttur, en leikmenn beggja liða eiga hrós skilið fyrir góða baráttu og sérstaklega munaði Hauka um hversu mörg sóknarfráköst þeir náðu sem leiddu svo til körfu.
Gestirnir byrjuðu fyrsta leikhluta sterkt og náðu fyrir lok hans 5 stiga forystu, 16-21. Annar leikhluti var svo í járnum, en í hálfleik var staðan 37-42 fyrir Hauka. Shiran virðist hafa hvíslað nokkur vel valin orð að sínum mönnum í hálfleik og skiptu KFÍ yfir í svæðisvörn, sem virtist rugla gestina nokkuð í ríminu til þess að byrja með. Þannig náði KFÍ að vinna sig vel til baka og komust svo yfir 55-53 með fallegu sniðskoti frá Craig Schoen, þegar tæplega 4 mínutur voru eftir af 3ja leikhluta. Á þessum kafla var KFÍ að spila ágætisvörn með þá Craig, Ara, Carl, Darko og Edin fremsta á meðal jafningja. Ari Gylfason fær sérstakt hrós í kvöld en hann var krafmikill og sýndi nokkrum sinnum hversu góð skytta hann getur verið. Það lofar góðu fyrir KFÍ ef Ari er aftur að komast á fullt skrið. Daði var hins vegar ekki heppinn með skotin í leiknum en það verður ekki af honum tekið að hann barðist eins og ljón í vörninni og stýrði liðinu vel þegar hann tók upp boltann (enginn tapaður bolti).
 
Fjórði leikhluti varð svo háspennuleikþáttur, sem eiginlega hefði verið rétt að vara hjartveika og taugaóstyrka einstaklinga við að horfa á. Ekki var mikið skorað en nokkrar hádramatískar sveiflur sáust, sem í stuttu máli enduðu með því að Haukarnir unnu þennan fjórðung 12-18, og lokastaðan reyndist vera 75-77 gestunum í vil. Þar með var níunda tap KFÍ í vetur orðið staðreynd og staða liðsins orðin grafalvarleg í IE deildinni.
 
Það er ekki uppbyggilegt að ræða mikið um dómara enda eru það fyrst og fremst leikmenn og þjálfarar sem eru alveg fullfærir um að tapa leikjunum á eigin spýtur. Undir lok leiks í kvöld gerðist umdeilt atvik en þau eru oft einmitt kryddið í körfuboltaleikjunum. Ekki verður þó hjá því komist að fara aðeins yfir þessa atburðarás nánar, eins og hún blasti fréttaritar við. KFÍ hafði jafnað leikinn í 75-75 og rétt rúmlega sjö sekúndur voru eftir á klukkunni. Haukar tóku lékhlé, komnir í skotrétt og áttu svo að taka boltann inn við miðju. Það hefði ekki verið í frásögur færandi nema vegna þess að leikmaður Hauka tekur boltann inn ekki við miðju, heldur inn á miðjum vellinum. Semaj Inge fékk svo boltann og skeiðaði upp völlinn og skoraði laglega flautukörfu sem tryggði sigur gestanna. Heimamenn sátu eftir með sárt ennið og ekki laust við að erfitt sé að taka tapi á þennan hátt. Myndband segir meira en þúsund orð og má skoða þetta atvik hér. 
 
Bestur Haukamanna í þessum leik var að öðrum ólöstuðum Semaj Inge sem skoraði 34 stig, tók 8 fráköst og var með 32 framlagsstig. Hefur hann verið stöðugur í leik sínum í vetur sem einkennir auðvitað hágæða leikmenn. Gerald Robinson var með 17 stig, 20 fráköst (þar af 9 sóknarfráköst!) og slæmt lungnakvef. Gerald náði sem betur fer að hreinsa vit sín rækilega, með vænni slummu hræktri á gólf Jakans með tilfþrifum. Þetta var sjálfsagt smekklega gert og vafalaust kætti hann heimamenn sem og nærsveitarmenn. Gárungarnir töldu að með þessu hefði Gerald þessi sparað Haukaliðinu að borga yfirvigt á bakaleiðinni, svo stór var slumman.
 
KFÍ menn voru nokkuð jafnir en mest áberandi voru þeir Nebosja, Edin og Craig. Craig var með 13 stig, 8 fráköst og 4 stoðsendingar, en hann hefur þó oft verið meira afgerandi en í kvöld. Þó verður Craig með sanngirni ekki stimplaður einhver skúrkur í kvöld og barðist hann vel fyrir liðið. Framlag KFÍ manna var nokkuð jafnt og dreifðist ágætlega á þá sem spiluðu og má nefna að KFÍ var með 78 í framlag á meðan Haukar voru með 72. Svona er þó leikurinn og það eru körfurnar sem telja.
 
Dómarar: Georg Andersen og Steinar Orri Sigurðsson.
 
Umfjöllun og Ljósmynd: Helgi Sigmundsson
Fréttir
- Auglýsing -