Nýjasti liðsstyrkur Tindastóls, Bandaríkjamaðurinn Jalen Adaway, var vísað úr leik og settur í bann í NBA G-League í apríl árið 2023 vegna brota á reglum deildarinnar um lyfjamál.
Tilkynnt var um bannið af hálfu deildarinnar vorið 2023, en þar sem Adaway var á sínu fyrsta ári í deildinni átti hann möguleika á að sækja um endurupptöku að einu ári liðnu. Sem og hann gerði og var hann á mála hjá San Diego Clippers á síðasta ári.
Samkvæmt reglum deildarinnar eru nánari upplýsingar um eðli brotsins eða prófana ekki gerðar opinberar. Adaway hélt síðar til Evrópu þar sem hann lék í Slóvakíu áður en hann samdi við Tindastól fyrir komandi keppnistímabil, en



