HomeBónus deildinBónus deild karlaNý spá fyrir Bónus: Álftanes á toppinn en Ármanni og Sindra spáð...

Ný spá fyrir Bónus: Álftanes á toppinn en Ármanni og Sindra spáð falli

Aukasendingin kom aftur saman á dögunum til að fínpússa og uppfæra spá sína fyrir komandi leiktíð í Bónusdeild karla 2026–27. Eftir frekari vendingar á leikmannamarkaðnum og nánari rýni á mannskap félaganna töldu sérfræðingar þáttarins rétt að endurskoða fyrri spá og gera á henni veigamiklar breytingar.

Hérna er hægt að hlusta á Aukasendinguna á Spotify

Samkvæmt nýrri og uppfærðri spá Aukasendingarinnar er Álftanasi spáð deildarmeistaratitlinum, en Tindastóll og KR fylgja fast á hæla þeirra í efstu þremur sætunum. Grindavík og Stjarnan skipa 4. og 5. sætið á meðan Keflavík og Njarðvík sitja í 6. og 7. sæti. Í neðri hluta töflunnar er ÍR spáð 8. sæti og síðasta sætinu inn í úrslitakeppnina, en Valur og Höttur sitja fyrir utan í 9. og 10. sæti. Á botninum er nýliðum og spútnikliðum Sindra og Ármanns spáð falli í 11. og 12. sæti.

Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Uppfærð spá Aukasendingarinnar fyrir Bónusdeild karla:

  1. Álftanes
  2. Tindastóll
  3. KR
  4. Grindavík
  5. Stjarnan
  6. Keflavík
  7. Njarðvík
  8. ÍR
  9. Valur
  10. Höttur
  11. Sindri
  12. Ármann
Fréttir
- Auglýsing -