spot_img
HomeFréttirNútíma evrópskur körfubolti í Höllinni

Nútíma evrópskur körfubolti í Höllinni

Borce Ilievski hefur lengi dvalið á Íslandi og þjálfað KFÍ, Tindastól og nú Breiðablik. Hann hefur alltaf verið duglegur að sækja sér fróðleik til Evrópu á sumrin og karfan.is frétti að hann hafi kynnst landsliði Svartfellinga vel í sumar. Við heyrðum því í honum og fengum hann til að segja okkur frá liði Svartfjallalands.
 
”Ef litið er á 8 sigra í 8 leikjum hjá Svartfjallalandi þá má segja að þessi árangur sé það sem hefur komið mest á óvart í þessari undankeppni það sem af er. Markmið þeirra er án nokkurs vafa að fara taplausir í gegnum riðilinn.
 
Luka Pavicevic er þjálfari liðsins. Mér gafst tækifæri til að eyða 7 dögum með liðinu í sumar. Í fyrrasumar fékk ég tækifæri til að fylgjast með störfum Pavicevic sem þjálfara Serbneska háskólans sem sigraði á háskólamóti í Kína. Þar fékk góða innsýn í hvernig hann vinnur og hvaða kerfi hann notar. Ég tel mig mjög heppinn að hafa fengið að kynnast vinnubrögðum Pavicevic en hann er af mörgum talinn einn efnilegasti þjálfari í Evrópu í dag.
 
Enginn átti von á svona góðum árangri þar sem lykilleikmenn vantar í liðið eins og Nikola Pekovic leikmann Minnesota Timberwolves og Nikola Vucinic frá Orlando Magic. Einnig ákváðu nokkrir reyndir menn að gefa ekki kost á sér, menn eins og Goran Jertin, Slavko Vranes sem er 228 cm og svo Vladimir Golubovic. Bandaríkjamaðurinn Omar Cook er ekki lengur með en liðið er þó með einn bandarískan leikmann, Tejlor Rochestie.
 
Þrátt fyrir allar þessar afboðanir og stóru breytingar tókst Pavicevic að búa til einsleitan hóp án nokkurar stjörnu. Leikur þeirra einkennist af pick and roll, áköf vörn og hraðaupphlaup.
Byrjunarlið þeirra er venjulega skipað eftirfarandi leikmönnum. Leikstjórnandi er Taylor Rochestie, skotbakvörður Suad Sehovic sem er frábær skytta, lítill framherji er Aleksandar Popoivc, frábær varnarmaður og vel nýtanlegur í sókn. Stór framherji er Vladimir Dasic sem margir reikna með að eigi framtíð fyrir sér í NBA og miðherji liðsins er Bojan Dubljevic sem er 207 cm og 21 árs og mun leika með Valencia í vetur.
 
Fyrstir af bekknum í baklínuna eru þeir Miko Bjelical og Blagota Sekulic sem báðir leika í ACB á Spáni og er Sekulic leikreyndasti maður liðsins. Vladimir Dragicevic er meiddur svo ég á ekki von á að hann spili. Varaleikstjórnandi er Nikola Ivanovic, 18 ára gamall sem skoraði sigurkörfuna gegn Serbíu í Belgrad á dögunum.
 
Eins og sjá má er landslið Svartfellinga fullt af leikmönnum sem eru að leika í bestu deildum Evrópu. Það er því frábært tækifæri fyrir áhorfendur að koma og sjá lið leika nútíma evrópskan körfubolta. Ég vil þó taka það fram, þrátt fyrir tap í Podgorica, að Ísland hefur leikið mjög vel og ég tel þá verðuga andstæðinga fyrir Svartfellinga.”
 
Fréttir
- Auglýsing -