Norrköping Dolphins vann sterkan útisigur áðan gegn Sundsvall Dragons þegar liðin mættust í sínum fyrsta leik í úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik. Liðsmenn Sundsvall áttu lokaskot leiksins sem geigaði, lokatölur 78-79 fyrir Norrköping og þeir félagar Jakob Sigurðarson og Hlynur Bæringsson fara því 0-1 undir á útivöll í næsta leik.
Hlynur gerði 14 stig og tók 8 fráköst í leiknum og Jakob bætti við 11 stigum, 4 fráköstum og 3 stoðsendingum en stigahæstur hjá Sundsvall var Alex Wesby með 20 stig og 4 fráköst.
Sundsvall leiddi 78-77 þegar 42 sekúndur voru til leiksloka en Norrköping komst yfir 78-79 og í síðustu sókninni tóku liðsmenn Sundsvall fremur þvingað skot sem rataði ekki rétta leið.
Hlynur Bæringsson var rekinn út úr húsi snemma í fjórða leikhluta eftir byltu með George Gervin leikmanni Norrköping. Gervin fór sömu leið og Hlynur enda virtist hann sparka í andlit Hlyns. Leikbann gæti því verið á næstu grösum hjá báðum þessum leikmönnum en það skýrist væntanlega fyrr en síðar.





