Ljóst er eftir nú er öllum leikjum í riðlakeppni A-deildar evrópumóts U20 landsliða er lokið að Íslendingar fá kunnuglega andstæðinga í 16 liða úrslitum mótsins.
Það eru nefnilega nágrannar Íslands, Svíþjóð sem bíða liðinu í 16 liða úrslitum mótsins. Svíþjóð endaði í öðru sæti A-riðils sem lauk í Chania í dag. Grikkland vann riðilinn nokkuð örugglega. Með sigri Íslands á Svartfjallalandi í dag losnaði liðið við að mæta heimamönnum í Grikklandi sem þykir ansi sigurstranglegt lið á mótinu.
Ísland mætti Svíþjóð á æfingamóti sem fram fór í Reykjavík fyrir nokkrum vikum. Þar vann Ísland þriggja stiga sigur eftir frábæra endurkomu í lokin. Íslenska liðið spilaði alls ekki frábærlega í þeim leik og því má segja að möguleikar Íslands á að komast í átta liða úrslit séu að minnsta kosti til staðar.
Sigur í 16 liða úrslitum þýðir ekki bara að liðið tryggir sér í átta efstu sæti keppninnar heldur er Ísland þar með með tryggt sæti í A-deild að ári. Svíar eru með sterkt lið í ár og unnu góða sigra á Þýskalandi og Tékklandi, það er því erfiður leikur framundan.
Leikurinn fer fram kl 11:30 á miðvikudaginn að Íslenskum tíma. Leikirnir í útsláttakeppni mótsins fara fram í Heraklion og færir íslenska liðið sig því um hótel á morgun.
Umfjöllun um leik Íslands og Svíþjóðar á æfingamótinu má finna hér.