spot_img
HomeFréttirNorðurlandamótið 2023 á enda – Karfan þakkar fyrir sig

Norðurlandamótið 2023 á enda – Karfan þakkar fyrir sig

Norðurlandamóti undir 16, 18 ára drengja/stúlkna og undir 20 ára kvenna/karla lauk í dag í Kisakallio í Finnlandi. Öll stóðu liðin sig vel þetta árið og komust mörg þeirra á verðlaunapall. Karfan var svo heppin að fá að birta 128 fréttir með og í kringum leikina 29 sem spilaðir voru í Kisakallio og Södertalje þetta árið

Hérna eru fréttir af Norðurlandamótinu 2023

Gaman var að sjá hversu mörg liðanna náðu að vinna til verðlauna, en í heild unnu liðin 16 og töpuðu 13 leikjum. Einnig komust margir leikmanna íslensku liðanna í úrvalslið mótsins. Kolbrún María Ármannsdóttir og Jóhanna Ýr Ágústsdóttir voru valdar í úrvalslið U16 stúlkna, og Kolbrún var einnig valin besti leikmaður mótsins. Hjá undir 20 ára konum var Elísabeth Ýr Ægisdóttir í úrvalsliði og hjá undir 18 ára drengjum var Kristján Fannar Ingólfsson í úrvalsliðinu. Hjá undir 20 ára körlum voru svo bæði Almar Orri Atlason og Orri Gunnarsson í úrvalsliðinu.

Karfan vill þó nota þetta tækifæri til þess að þakka Körfuknattleikssambandinu, stjórninni og starfsmönnum, sérstaklega afreksstjóranum Kristni Geir Pálssyni fyrir stuðninginn og samstarfið bæði þetta árið, sem og öll þau ár sem á undan hafa farið. Því það er vissulega svo að Karfan láti af hendi sjálfboðaliða í verkefnið á hverju ári, en án trausts og vilja til samstarfs frá þeim væri miðillinn ekki að sinna því áhugaverða starfi að fylgja þessum efnilegu krökkum eftir.

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -