Leikmaður Vestra, Nökkvi Harðarson lenti í því óheppilega atviki að vera rotaður af leikmanni ÍA, Fannari Frey Helgasyni, í leik liðanna í gær þegar að þeir báðir voru á leiðinni í frákast eftir vítaskot. Nökkvi var fluttur á sjúkrahús um leið þar sem að læknar héldu honum yfir nóttina. Hann fór í einhverjar rannsóknir í morgun en ekkert hefur þó komið út varðandi það hversu alvarleg meiðsl hans séu, leikmaðurinn kveðst þó ekkert muna eftir leik gærkvöldsins. Læknar vilja því ekki sem stendur gefa neina dagsetningu á hvenær Nökkvi verði mættur aftur á parketið.
Þetta er annar leikmaðurinn sem að fær vænt höfuðhögg í leik, en fyrir nokkrum vikum fékk leikmaður ÍR, Stefán Karel Torfason, einnig höfuðhögg og er frá næstu vikurnar sökum þess.
Hérna má sjá brotið úr leik ÍA og Vestra sem birtist fyrst á síðu Fúsíjama Tv:




