HomeBónus deildinBónus deild karlaNokkrir gjörsamlega hörmulegir dómar á lokamínútunum

Nokkrir gjörsamlega hörmulegir dómar á lokamínútunum

Boltinn lýgur ekki kom saman á dögunum og meða annars fór yfir fyrstu leiki ársins í Bónus deild karla.

Með Véfréttinni Sigurði Orra Kristjánsyni var þar eins og svo oft áður blaðamaðurinn Siggeir Ævarsson og þá er slegið á línuna til goðsagnarinnar og sjónvarpsmannsins Teits Örlygssonar.

Hérna er hægt að hlusta á þáttinn á Spotify, en þá er hann einnig aðgengilegur á öllum hlaðvarpsveitum undir nafninu Boltinn lýgur ekki.

Gestur þáttarins Teitur Örlygsson fór nokkuð vel yfir lokamínútur spennandi leiks Njarðvíkur og Grindavíkur. Njarðvíkingar höfðu haft góða forystu inn í síðustu mínútur leiksins, en tókst á einhvern undraverðan hátt að tapa leiknum í framlengingu. Helst tekur Teitur til furðulega villu sem dæmd var á miðherja Njarðvíkur Dominykas Milka sem sendi þann grindvíska Daniel Mortensen á línuna í þrjú víti á ögurstundu. Umræðuna er hægt að hlusta á í síðasta þætti af Boltinn lýgur ekki, en ásamt villunni á Dominykas eru nokkrir aðrir hlutir taldir til sem þóttu vafasamir á hlut heimamanna í Njarðvík.

Fréttir
- Auglýsing -