spot_img
HomeFréttirNjarðvíkingar upp úr fallsætinu eftir spennusigur í Hveragerði

Njarðvíkingar upp úr fallsætinu eftir spennusigur í Hveragerði

 
Njarðvíkurmenn fóru í Hveragerði og sóttu tvö dýrmæt stig í slagnum í neðsta hluta deildarinnar og lyftu sér upp í níunda sætið og sendu heimamenn í fallsæti þegar liðin mættust í Iceland Express deild karla í kvöld. Lokatölur í Blómabænum voru 77-78 Njarðvíkingum í vil.
Jafnræði var með liðunum og greinilegt að hvorugt liðið ætlaði sér að gefa tommu eftir. Skotin hjá heimamönnum voru að detta örlítið betur en hjá gestunum og höfðu þeir frumkvæðið þar til annar leikhlutinn var að líða undir lok en þá komust Njarðvíkingar yfir og lokaði Christopher Smith fyrri hálfleiknum með skemtilegri troðslu við mikinn fögnuð fjölmargra stuðningsmanna sem lögðu leið sína í Blómabæinn. Staðan 39-43 í hálfleik.
Njarðvíkingar juku örlítið forskot sitt í byrjun þriðja leikhluta en heimamenn sóttu síðan í sig veðrið eftir því sem leið á leikhlutann og Devin Sweetney negldi niður þrist þegar þegar þriðji leikhluti var að fjara út og jafnaði leikinn 61-61.
 
Fjórði leikhlutinn byrjaði á því að MJ Moore skellti niður þrist en Kjartan Kárason svaraði að bragði fyrir heimamenn. MJ Moore setti þá niður stökkskot sem Darri svaraði með öðru stökkskoti. Þá fór taugatritingur að gera vart við sig og aðeins var skorað eitt stig í tæplega fimm næstu mínútur. Ólafur Helgi Jónsson og MJ Moore duttu þá inn með sitthvorn þristinn og komu gestunum yfir 67-72 þegar þrjár og hálf mínúta voru eftir.
 
Nýr útlendingur Hamarsmanna Devin Sweetney ákvað þá að stimpla sig inn og tók fallegt drive og í næstu sókn smellti hann niður þristi rúmlega meter fyrir utan línuna. Nenad Tomasevic svaraði með þrist hinumeginn og skömmu síðar varði MJ Moore skot frá stóra stráknum Ragnari Nat og bætti svo um betur með því að setja þrist í næstu sókn og staðan orðin 72-78 og rúm mínúta eftir af leiknum.
 
Ágúst Björgvinsson tók þá leikhlé og lagði línurnar fyrir sína stráka sem skilaði sér í því að Kjartan Kárason fékk boltann galopinn í horninu og setti niður risa þrist. Í næstu sókn settu Hamarsmenn góða pressu á Christopher Smith sem reyndi að losa sig við boltann en Ellert komst inn í sendinguna og sendi boltann fram á Nerijus sem átti opið lay-up og minnkaði muninn í 77-78 þegar hálf mínúta var eftir og spennan var orðin áþreifanleg í húsinu.
 
Hamarsmenn spiluðu agressíva vörn sem leiddi af sér að Ólafur fékk dæmt á sig skref og Hamarsmenn áttu möguleika á að ná sigrinum á lokasprettinum. Devin Sweetney ætlaði sér að gera áhlaup á körfuna þegar um 8 sekúndur voru eftir af leiknum en lenti á vegg Njarðvíkinga og missti boltann útaf og vonir Hvergerðinga fjöruðu út þar sem aðeins voru 6,2 sekúndur eftir af leiknum og Njarðvíkurliðið þremur villum frá því að komast í skotrétt. Hamarsmenn náðu að brjóta þegar 5,1 sekúnda var eftir en þá vantaði enn tvær villur upp á og Njarðvíkingar náðu að spila út þær sekúndur sem uppá vantaði og náðu Hamarsmenn ekki að brjóta þannig að gestirnir unnu með minnsta mögulega mun 77-78.
 
Devin Sweetney var atkvæðamestur hjá heimamönnum með 26 stig og 9 fráköst, Darri Hilmarsson skoraði 22 stig og tók 7 fráköst, Kjartan Kárason skoraði 12 stig og Ellert Arnarsson skoraði 8 stig og gaf 9 stoðsendingar.
 
Hjá gestunum var M J Moore stigahæstur með 19 stig og 7 fráköst, Christofer Smith skoraði 17 stig og varði 4 skot, Ólafur Helgi Jónsson skoraði 15 stig og Nenad Tomasevic var með 12 stig, 8 fráköst og 4 stoðsendingar.
 
Myndasafn og umfjöllun: Sævar Logi Ólafsson
Fréttir
- Auglýsing -