Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur sagt upp samningi sínum við Carmen Tyson-Thomas vegna samskiptaörðugleika eins og fram kemur í tilkynningu frá félaginu í kvöld.
Tilkynning KKD UMFN:
Körfuknattleiksdeild UMFN hefur sagt upp samningi sínum við Carmen Tyson-Thomas leikmann kvennaliðs félagsins. Carmen hefur þar með leikið sinn síðasta leik þó enn séu þrír leikir eftir í deildarkeppni Domino´s-deildar kvenna.
Ástæða uppsagnarinnar eru samskiptaörðugleikar án þess að tíunda hvað í þeim felst við það ástand var ekki unað og því mat körfuknattleiksdeildar UMFN að láta gott heita.
Óumdeilt er að hæfileikar Carmen Tyson-Thomas eru gríðarlegir á körfuboltavellinum og er henni þakkað sitt veglega framlag til félagsins og óskar körfuknattleiksdeildin henni velfarnaðar.
Fyrir hönd stjórnar KKD UMFN
Róbert Þór Guðnason, formaður
Njarðvíkurkonur eiga þrjá leiki eftir í Domino´s-deild kvenna og verða því án langsterkasta leikmannsins sem hefur skilað rosalegum tölum í deildinni í vetur en í dag er Carmen með 37 stig og 16,5 fráköst að meðaltali í leik!



