20:52
{mosimage}
Leikjum kvöldsins er nú að ljúka og er þeim fyrsta lokið, Njarðvík sigraði ÍR í Seljaskólanum 73-69 og eru ÍR ingar því enn án sigurs í deildinni. Á Sauðárkróki unnu heimamenn Stjörnuna 84-78. Þórsarar unnu FSu 99-89 á Akureyri. Þá fór fram 1 leikur í 1. deild karla, Þór í Þorlákshöfn heimsótti Ármann og vann 79-85. Darrel Flake skoraði 26 stig fyrir Tindastól og tók 15 fráköst en Justin Shouse var atkvæðamestur Stjörnumanna með 26 stig. Hjá Þór gerði Cedric Isom 47 stig fyrir heimamenn en hjá FSu var Vésteinn Sveinsson með 23 stig. Logi Gunnarsson gerði 39 stig fyrir Njarðvíkinga gegn ÍR en beðið er eftir tölfræðinni úr Seljaskóla.






