Njarðvíkingar voru ekki að fullu mættar til leiks þegar fyrsti leikhluti hófst í blómabænum í gærkvöldi en á móti voru Hamarskonur grimmari á öllum sviðum og hittu vel. Grænar fóru þó með sigur af hólmi í spennuslag og náðu fyrir vikið að minnka forskot Keflavíkur á toppi deildarinnar niður í tvö stig.
Eftir fyrsta hlutann var staðan 23-16 fyrir heimaliðið og enn dró í sundur í öðrum leikhluta þar sem Hamar náði mest 20 stiga forystu í stöðunni 39-19. Þá skelltu Njarðvíkingar í hressilega pressuvörn sem stundum minnti á ruðning frekar en körfubolta og það skilaði sínu og forystan varð fljótlega einungis 10 stig. Þá setti Murphy 3ja stiga körfu og brotið á henni og vítið einnig ofaní, 45-31 og í leikhlé 48-35 fyrir heimastúlkur. Samantha Murphy fór mikinn í fyrri hálfleik með 5 þrista og 23 stig alls.
Síðasi hálfleikur hélt áfram eins og sá fyrri endaði að Njarvík nálgaðist hægt og sígandi. Svo fór að Njarðvík jafnaði og komst 2 stigum yfir 58-60 og flest allir karlar og konur í húsinu með andarteppu af spenningi sem átti eftir að endast út leikinn. Graham setti næstu 6 stig leiksins og gaf stoðsendingu á Sóley á lokasekúndu 3.leikhluta og Hamar með 66-60 fyrir lokaátökin. Marín var með 4 villur hjá heimaliðinu og Hardy sömuleiðis hjá Njarðvík.
Síðasti leikhluti var drama frá a-ö og jafn á flestum tölum frá 70-70 til 79-79 en þá komst Hamar í 4 stiga forustu og flestir kátir í húsinu nema Njarðvíkurbekkurinn. Petrúnella sem var búin að vera ísköld allan leikinn og ekki hitt nema einu skot1 af 11 utan af velli og tók þarna sitt sjötta 3ja stiga skot og beint ofaní! Hér var 1 mínúta eftir og Hamar missti boltan í næstu sókn! Hardy skoraði svo eftir sóknarfrákast frá eigin skoti í lokasókn Njarvíkur og um 20 sekúndur eftir á klukkunni. Þetta var aðeins í þriðja skiptið sem Njarðvík komst yfir í leiknum og það dugði! Það var kaldhæðni örlaganna að Graham var mislagðar hendur í síðustu sókn Hamarskvenna en hún var með ótrulegt framlag í kvöld (44 stig) og best á vellinum. Bæði lið voru með útlendingana í stórum hlutverkum í kvöld og 61 stig Njarvíkur voru skorað af Price og Hardy en hjá heimastúlkum skoruðu Graham og Murphy 63 stig samtals.
Hamar-Njarðvík 83-84 (29-16, 19-19, 18-25, 17-24)
Hamar: Katherine Virginia Graham 34/10 fráköst/9 stoðsendingar/5 stolnir, Samantha Murphy 29/6 fráköst, Fanney Lind Guðmundsdóttir 6/6 fráköst, Íris Ásgeirsdóttir 4, Marín Laufey Davíðsdóttir 4/6 fráköst, Sóley Guðgeirsdóttir 2, Jenný Harðardóttir 2, Álfhildur Þorsteinsdóttir 2/9 fráköst.
Njarðvík: Shanae Baker-Brice 33/12 fráköst, Lele Hardy 28/17 fráköst/5 stoðsendingar/5 stolnir, Petrúnella Skúladóttir 10/5 stolnir, Salbjörg Sævarsdóttir 6/7 fráköst, Ólöf Helga Pálsdóttir 3/5 fráköst, Erna Hákonardóttir 3, Andrea Björt Ólafsdóttir 1.
Mynd/ Jóhann Tr. Sigurðsson: Katherine Graham fór á kostum í gær með Hamri en það dugði ekki til að þessu sinni.
Umfjöllun/ Anton Tómasson



