Þegar einungis vika er í að Dominos deild karla hefjist er undirbúningur allra liða að að ná hámarki með æfingaleikjum um allt land.
Breiðablik sem leikur í 1. deild karla tók á móti Njarðvík sem ætlar sér stærri hluti í Dominos deildinni nú en á síðasta tímabili. Nokkuð jafnræði var með liðinu allan leikinn en Njarðvík leiddi allan leikinn. Í fjórða leikhluta kom Breiðablik með gott áhlaup og mátti litlu muna að þeir næðu að jafna gestina. Munurinn var minnstur tvö stig en Njarðvík tókst að lokum að knýja fram 84-89 sigur á Breiðablik.
Oddur Rúnar Kristjánsson var stigahæstur með 18 stig hjá Njarðvík, þá var Ragnar Nat með 16 stig og Logi Gunnarsson með 15 stig. Hjá Breiðablik var Sveinbjörn Jóhannesson með 22 stig og Jeremy Smith með 14 stig.
Það sama var ekki uppá teningnum á Ásvöllum þar sem heimamenn í Haukum tóku á móti Tindastól. Eftir jafnan fyrsta leikhluta settu Sauðkrækingar í gírinn í öðrum leikhluta og náðu rúmlega 20 stiga mun. Sigtryggur Arnar fór hamförum í öðrum leikhluta og setti fjórar þriggja stiga körfur. Lokastaðan var 75-105 öruggur sigur Tindastóls en stigaskor leikmanna liggur ekki fyrir. Pétur Rúnar, Sigtryggur Arnar og Anthonio Hester voru gríðarlega sterkir fyrir gestina.
Dominos deild karla hefst þann 5. október með fjórum leikjum. Tindastóll tekur á móti ÍR, Njarðvík heimsækir KR og Haukar fá Þór Ak í heimsókn föstudaginn 6. október.
Ljósmyndari Karfan.is var á leikjunum og má finna myndasöfn úr þeim hér að neðan:
Myndasafn úr leik Breiðabliks og Njarðvíkur
Myndasafn úr leik Hauka og Tindastóls




