spot_img
HomeBónusdeildinBónusdeild karlaNjarðvík og KR með sigra á fyrsta degi Pétursmótins

Njarðvík og KR með sigra á fyrsta degi Pétursmótins

Liðin í efstu deilum landsins eru á fullu þessa dagana að undirbúa sig fyrir komandi átök. Nokkur fjöldi af æfingaleikjum eru í gangi og er spennandi að sjá hvernig liðin koma undan sumri.

Pétursmótið hófst í dag þar sem fjögur sterk lið taka þátt, þ.e. Njarðvík, KR, Grindavík og Keflavík en mótið er haldið til minningar um Pétur Pétursson. Nokkur haustbragur var á liðum en gaman var að sjá hvernig liðin koma undan sumri.

Liðin sem mætast í fyrstu umferð Dominos deildarinnar Keflavík og Njarðvík mættust í fyrsta leik mótsins. Njarðvík var í bílstjóra sætinu í leiknum og hafði 90-73 sigur gegn Keflvíkingum.

Í seinni leik dagsins mætti KR Grindavík í fínum leik. Íslandsmeistararnir gerðu sér lítið fyrir og náðu í sigur 83-71 gegn Grindvíkingum.

Viðtöl eftir leiki dagsins eru væntanleg á Karfan.is síðar í kvöld.

Ert þú með úrslit úr æfingaleik? Endilega sendu okkur línu á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -