Njarðvík 1-0 Tindastóll
Njarðvík tók í kvöld 1-0 forystu gegn Tindastól í 8-liða úrslitum Bónusdeildar kvenna. Lokatölur 103-97 í hörku leik þar sem Njarðvíkingar voru þó alltaf við stýrið. Brittany Dinkins var stigahæst í liði Njarðvíkinga með 35 stig, 5 fráköst og 7 stoðsendingar og Danielle Rodriguez var afar nærri þrennunni með 24 stig, 11 fráköst og 9 stoðsendingar. Hjá Tindastól var Madison Anne Sutton með 35 stig, 8 fráköst og 2 stoðsendingar.
Það var jafnt að loknum fyrsta leikhluta 26-26 þar sem Dinkins gerði 10 stig fyrir Njarðvík og Marta 10 sömuleiðis fyrir gestina. Marta fékk tvær villur í fyrsta leikhluta og varð að hafa gætur á varnarleik sínum því villuvandræðin áttu eftir að elta hana í kvöld. Njarðvík komst í 26-20 en Stólarnir gerðu sex síðustu stig fyrsta leikhluta og jöfnuðu metin.

Snemma í öðrum leikhluta fékk Marta sína þriðju villu og hélt á tréverkið og þá tókst Njarðvík að vinna upp ágæta forystu. Sara Björk sem átti einn sinn allra besta leik í Bónusdeildinni í kvöld kom heit inn af tréverkinu og skaut af öryggi, var 5-9 í þristum og lauk leik með 17 stig. Frábær frammistaða og sterk innkoma hjá Söru sem Stólarnir áttu líklega ekki von á enda gekk Njarðvík vel að finna opin skot fyrir Söru í leiknum. Dinkins hélt áfram að hrella vörn gestanna og Njarðvík leiddi 59-46 í hálfleik.
Í þriðja leikhluta hertu gestirnir vörnina og náðu að minnka muninn í 79-71 og þannig stóðu leikar fyrir fjórða leikhluta. Góð barátta í gestunum þar sem Madison fór fyrir Tindastól og Roselis var dugleg að mata liðsfélaga sína en hún var með flotta tvennu í kvöld, 12 stig og 14 stosðendingar.

Tindastóll náði að minnka muninn í fjórða allt niður í þrjú stig en stórar körfur hjá Njarðvík eins og fjögurra stiga sókn hjá Helenu Rafnsdóttur voru nóg til að halda gestunum fjarri. Lokatölur 103-97 í opnum og skemmtilegum leik. Njarðvík leiðir því einvígið 1-0 eins og áður segir en liðin mætast að nýju í Síkinu í Skagafirði á föstudaginn langa þann 3. apríl kl. 18.00.





