HomeFréttirNjarðvík lagði stelpurnar úr blómabænum og jafnaði einvígið

Njarðvík lagði stelpurnar úr blómabænum og jafnaði einvígið

 
Það var boðið uppá hreint frábæran körfubolta í Ljónagryfjunni í kvöld þegar heimastúlkur tóku á móti stelpunum frá Hveragerði. Deildarmeistarar Hamars unnu fyrsta undanúrslitaleik liðanna og leiddu því 1-0 í rimmunni fyrir viðureign kvöldsins.
Það virstist vera pínu taugaveiklun hjá báðum liðum í upphafi leiks, en þær voru fljótar að komast yfir það og spiluðu skemmtilegan og hraðan leik og það var engin önnur en Julia Demirer, fyrrverandi Hamarskona sem að skoraði fyrstu tvö stig Njarðvikurkvenna en Jaleesa Butler jafnaði strax fyrir gestina og má segja að hún hafi tekið leikinn í sínar hendur fyrir hönd þeirra þar sem hún var allt í öllu hjá þeim og var þessi frábæri leikmaður kominn með 17 stig í hálfleik. Hjá heimakonum var Julia stigahæst með 15 stig, en hin unga og efnilega Ína María var komin með 11 stig og þar af 3 þrista. Staðan í hálfleik 47-42 Njarðvík í vil.
 
Í seinni hálfleik sýndu Njarðvíkingar hvernig á að spila vörn. Er 4 mínútur voru liðnar af 3. leikhluta voru gestirnir komnir með 5 liðsvillur og voru heimakonur á vítalínunni meira og minna þennan leikhluta, þá aðallega Shayla, sem setti niður 11 af 12 vítum sínum. Heimakonur náðu góðri forrystu 70-53 og virtist allt stefna í góðan sigur þar sem að pirringur gerði vart um sig hjá gestunum og sönkuðu þær að sér villum. Hamarskonur rönkuðu við sér í lok fjórða leikhluta og söxuðu jafnt og þétt á forskot þeirra grænklæddu. Enn og aftur var það Jaleesa sem að sá um stigaskor þeirra, en einnig kom Kristrún með nokkrar mikilvægar körfur. Er tvær og hálf mínúta var eftir af leiknum var munurinn ekki nema 8 stig. En lengra komust gestirnir ekki. Heimakonur stóðu uppi sem sigurvegarar 86-78 og staðan því 1-1 í rimmunni.
 
Hjá heimakonum áttu margir leikmenn frábæran leik og barðist liðið um alla bolta hvar sem var á vellinum og einsog áður sagði, klassa varnarleikur. Hjá gestunum var það Jaleesa sem að átti frábæran leik og steig ekki feilspor á vellinum. Fanney átti mjög góðan dag og sýndi styrkleika sinn undir körfunni hjá gestunum. Kristrún kom sterk inn í seinni hálfleik.

Þriðji leikur liðanna fer svo fram í Hveragerði fimmtudaginn 24. mars næstkomandi.

 
Byrjunarlið Njarðvíkur; Dita, Shayla, Julia, Ólöf Helga, Ína María
Byrjunarlið Hamars; Jaleesa, Slavica, Kristrún, Íris, Fanney
 
Njarðvík : Julia Demirer 32/15 fráköst, Shayla Fields 25/9 fráköst, Ína María Einarsdóttir 11, Dita Liepkalne 8/14 fráköst/8 stoðsendingar, Ólöf Helga Pálsdóttir 4/6 fráköst, Auður R. Jónsdóttir 3, Anna María Ævarsdóttir 2, Árnína Lena Rúnarsdóttir 1, Sara Dögg Margeirsdóttir 0, Eyrún Líf Sigurðardóttir 0, Erna Hákonardóttir 0, Emelía Ósk Grétarsdóttir 0.
 
Hamar: Jaleesa Butler 36/8 fráköst/5 stolnir/3 varin skot, Slavica Dimovska 15/8 stoðsendingar, Kristrún Sigurjónsdóttir 13/5 fráköst, Fanney Lind Guðmundsdóttir 12, Jenný Harðardóttir 2, Rannveig Reynisdóttir 0, Regína Ösp Guðmundsdóttir 0, Íris Ásgeirsdóttir 0, Guðbjörg Sverrisdóttir 0/4 fráköst, Bylgja Sif Jónsdóttir 0, Adda María Óttarsdóttir 0, Þórunn Bjarnadóttir 0.
 
 
Umfjöllun: GÓS
Fréttir
- Auglýsing -