HomeFréttirNjarðvík í bikarúrslit í drengjaflokki

Njarðvík í bikarúrslit í drengjaflokki

Drengjaflokkar Skallagríms og Njarðvíkur öttu kappi í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi í kvöld. Leikurinn var í undanúrslitum bikarkeppni KKÍ. Leikurinn byrjaði fjörlega og jafnt var á flestum tölum. Skallagrímsmönnum gekk illa að ráða við Elvar Már Friðriksson sem er einn af lykilmönnum í úrvalsdeildarliði Njarðvíkur.
Mikið var skorað í fyrsta leikhluta og varnirnar eftir því, Njarðvík leiddi með minnsta mun 28-29 eftir 10 mínútur.
Í öðrum leikhluta mættu gestirnir grimmir til leiks og beittu svæðispressuvörn sem heimamönnum gekk illa að leysa. Varnarleikur heimamanna virkaði engan veginn og Njarvíkingar gengu á lagið, skoruðu hverja körfuna á fætur annari án þess að Borgnesingar næðu að svara. Mikið vonleysi einkenndi sóknarleik heimamanna, kerfin fengu ekki að rúlla sem skilaði sér svo í ótímabærum skotum. Gestirnir leiddu í hálfleik 40-56.
 
Heimamenn lögðu á ráðin í hálfleik og mættu dýrvitlausir til leiks í 3 leikhluta. Spiluðu brjálaða svæðisvörn með miklum hrópum og köllum, Elvar áðurnefndur slökkti í þeirri vörn strax á fyrstu mínútu leikhlutans með tveimur 3. Stiga körfum lanst,langt fyrir utan og breytti stöðunni í 40-62 og svo varð hún 40-74 og Njarvík búið að skora 18-0 í seinni hálfleik. Í raun kláraðist leikurinn þarna og lokatölur urðu 64-112 Njarðvíkingum í vil.
 
Alltaf var vitað að um erfiðan leik var að ræða fyrir heimamenn því þetta Njarðvíkurlið er geysisterkt. Það hefur ekki tapað leik á tímabilinu, hvorki í deild né bikar. Það er hinsvegar glæsilegur árangur hjá drengjaflokknum okkar að ná alla leið í undanúrslit og er þetta reynsla sem fer í hin margfræga reynslubanka hjá strákunum okkar.
 
Hjá Njarðvík var títtnefndur Elvar stórkoslegur með 46 stig og frábærar sendingar á félaga sína. Oddur var með 18 og Maciej 13.
 
Hjá Skallagrím var Davíð Guðmundsson með 22 stig, Hjalti með 15 og Steini 10  
 
Frétt: Bjarni Waage
Fréttir
- Auglýsing -