HomeBónus deildinBónus deild kvennaNjarðvík hélt sér á lífi

Njarðvík hélt sér á lífi

Njarðvík fagnaði mikilvægum sigri á Grindavík í IceMar-höllinni í kvöld, þar sem lokatölur urðu 94–88. Með þessum sigri tókst Njarðvíkingum að knýja fram fjórða leik og minnka muninn í 1–2 í einvíginu. Njarðvík mætti af miklum krafti strax í upphafi og leiddi með 14 stigum eftir fyrsta leikhluta, forysta sem reyndist dýrmæt þegar Grindvíkingar sóttu í sig veðrið á lokasprettinum.

Einvígið er gríðarlega spennandi en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér sæti í úrslitum Bónus-deildarinnar. Spennan er ekki síðri í hinu undanúrslitaeinvíginu þar sem staðan er jöfn, 1–1, á milli Hauka og Keflavíkur. Sá slagur heldur áfram strax annað kvöld þegar liðin mætast í þriðja sinn í Ólafssal.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -