Mjög öflugur leikur var í Dalhúsum í gærkvöld milli Fjölnis og Njarðvíkur í Iceland Express deild kvenna, heimakonur byrjuðu vel og komust í 8 – 3 fljótt með góðum sóknarleik en fyrir lok 1. leikhluta náðu Njarðvíkingar að vinna upp muninn og endaði hann 15 – 22 fyrir Njarðvík.
Annar leikhluti var jafn á alla kanta, leikurinn varð fljótt hnífjafn og eftir 3 min leik var staðan 22 -22 , en Fjölnir náði svo að taka fram úr með góðum sóknum og voru yfir í hálfleik 35 -30 .
Í 3.leikhluta gerist það að brotið mjög alvarlega á Tasha Harris sem var að fara í sniðskot og skellur í gólfið á bakinu mjög hart og liggur eftir, hún fer útaf og fær aðhlynningu og gat ekki spilað af fullum krafti eftir byltuna vegna eymsla í baki sem var blóðtaka fyrir Fjölnisliðið. Harris skoraði ekki eitt stig í seinni hálfleik og haltraði um völlin, ekki er vitað að svo stöddu hvernig líðan hennar mun vera fyrir næstu leiki.
4.leikhluti var spennandi og baráttuglaðar Njarðvíkurstúlkur settu í gang þriggja stiga sýningu sem Fjölnir átti erfitt með að svara fyrir og komust yfir í lok 4 leikhluta þegar 2 min eru eftir en þá var staðan 77-77 og hafði Njarðvík betur í restina og unnu sigur 79 – 88.
Dita var sjóðandi heit í Njarðvíkurliðinu með 31 stig 5/7 í þristum, og Ólöf 5/8 í þristum. Hjá Fjölni var miðherjinn Inga Buzoka með 2/3 í þristum, hún var mjög öflu með 26 stig og henni næst var Birna Eiríks með 15stig , 3/5 í þristum alla spjaldið og ofaní!
Umfjöllun: Karl West Karlsson





